Þetta græna með mjúku fyllingunni
Hafdís María
Lesist við tækifæri
18.08.2007 19:03:47 / keit

Litla systir orðin stór!!!

Jæja í tilefni þess að hún litla systir mín átti afmæli í fyrradag þá er ég að hugsa um að setja hér nokkur orð á blað:)

 

Ég man þegar Brynja var lítil, ljóshærð og með fuuuuullllt af krullum:) Ég man eftir litlu sætu systur minni sem ég var nú kannski ekki alveg sátt með að eiga svona fyrst um sinn....var vön að vera einka dekurbarn sko:)

Eitt sinn þegar við bjuggum á Hrafnseyri þá var Brynja kríli sofandi úti í vagni og ég og mamma vorum inni að taka upp á segulband til að senda frækum okkar á Hvammstanga þeim Írisi og Heiðrúnu:) Já ég sagði segulband!!!

 

Allavegana þá var mamma eitthvað að spjalla við mig og spurði mig meðal annars hvar Brynja væri.....Ég spurði þá bara....hvaða Brynja?? Svo seinna á spólunni þá var litla krúttið komið með í samræðurnar og kunni þá eingöngu að segja MJÓLK!!!! Bjagað meira að segja:)

Eitt sinn vorum við líka með mömmu og pabba niður í fjöru að leika....voða gaman nema Brynja var svo heilluð af hafinu að hún bara sat og góndi á sjóinn heillengi án þess að segja orð!!! Sjórinn kom nær og nær og alltaf sat mín sem föstust!!!:)

 

 

Jú henni var bjargað af ábyrgum foreldrum:)

 

Svo man ég líka eftir því þegar við áttum að fara að sofa eitt sinn á myrku vetrarkvöldi og vorum kannski ekki alveg til í það...vorum kannski svolítið óþekkar sko.....og mamma hótaði alltaf tröllinu á okkur ef við færum nú ekki að sofa!!! Já þessi óþekkt gekk svo langt hjá okkur:)

Við hlógum nú bara framan í hætturnar...vissum sko alveg að það væru ekki til nein tröll sko....þangað til að það var bankað á gluggann hjá okkur og látið öllum illum látum!!! Við hlógum ekki lengur og fórum að sofa......fréttum það svo löööööngu seinna að pabbi hefði verið að plata okkur:)

 

Eða þegar við vorum að "hjálpa" til í gróðurhúsunum....gera gildrur og svoleiðis fyrir þetta fullorðna fólk:) Þvo upp í bala!!! Drekka kaffi úr bollum í ískulda....bara til að hlýja okkur:)

 

 

Brynja var þessi góða jollý týpa....alltaf róleg og syngjandi....gerandi í því að pirra stóru systur sína.....sem var kannski ekkert svo rosalega góð við litlu systur sína og vorum við því alltaf að rífast!!! Náði ég einstaka sinnum að ergja systur mína með frekjunni í mér en það var ekki oft....hún fór nú samt stundum að gráta:(

 

Ég var alltaf að koma okkur í vandræði og það var oft sem litla systir var skömmuð þegar hún átti það ekki skilið!!! Hún var alltaf jafn róleg og tók skömmunum játandi og fór svo bara leið inn í herbergi!!! Þetta fannst stóru systur ekki sanngjarnt og oftar sem ekki urðu úr rosa rifrildi á milli föðurs og eldri dóttur vegna þess að dóttirin var að verja heiður yngri dótturinnar!!!

 

Brynja mátti örsjaldan leika með mér og fannst mér hún nú bara allt of lítil til að vera með stóru mér......en þegar einhver var að stríða henni eða eitthvað þá var ég fljót að koma til bjargar!!!

Þegar ég varð svo um 17ára þá tókust með okkur mikill vinskapur....hehe....og erum við bestu vinkonur í dag.....mér þykir alveg óendanlega vænt um litlu systur mína:)

Núna er Brynja orðin stór og sterk stelpa...orðin móðir,eiginkona og húseigandi og plummar sig bara rosalega vel í lífinu:) Mikið er ég ánægð með það:) Hún er besta vinkona mín og mér finnst æðislegt að eiga svona góða systur sem styður mig í öllu sem ég geri:)

 

Elsku Brynja...til hamingju með daginn um daginn og takk fyrir að vera til:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 18:55:24 / keit

Apaköttur!!!

Nú erum við komnar aftur til Gautaborgar.....rúmlega þúsund kílómetrum ríkari:) Þetta var langt ferðalag en mjög skemmtilegt. Í gær fórum við svo í dýragarðinn í Borås og það var rosalega gaman....þar sáum við fíla, gírafa, apa, ljón, nashyrninga og svo margt annað skemmtilegt. Við sáum td pínulítinn og nýfæddan sebrahest. Geðveikt sætur....nýfæddan kiðling sáum við líka....nýfædda apa og bara margt skrítið. Svo fórum við að borða á mc donalds og svo bara heim. Ætluðum að fara snemma að sofa en það varð ekkert úr því:) Í dag fórum við Erla svo í rosalega stóra "kringlu" og skoðuðum mikið. Keyptum reyndar bara einn bol og svo kaffi bara. Nú erum við svo heima hjá pabba og Pan að chilla.....afþví að það er úrhells rigning úti!!! Erum að fara að borða:) Keit át.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 12:42:02 / keit

Midsommarsfest!

Í gaer fórum vid Erla í laaaaangan bíltúr upp í midja Svítjód. Vid, eda réttara sagt ég keyrdi alla leid upp til Leksand, en tar býr módurbródir hennar Erlu:) Hún hefur ekki séd hann og fjölskylduna hans í 2 ár. Vid fengum lánadan bílinn hans pabba og keyrdum 550km nánast í einum rykk. Fraendi hennar heitir Ellert og hann er heyrnalaus....konan hans heitir Gunnilla og hún heyrir en kann táknmál. Hún er skólastjóri í heyrnleysingja skóla hér í Leksand og hann er kennari:) Tau eiga 2 stráka...17 og 18 ára. Mig langar gedveikt ad laera táknmál....hefur langad til tess lengi en enn meira núna.

 

Í kvöld er svo tessi midsumarshátíd og tad á ad grilla og borda úti í góda vedrinu:) Tad búa 15000 manns í Leksand en akkurat tessa einu helgi á árinu tá koma hingad 30 túsund ferdamenn allstadar ad úr heiminum:) Gaman ad tví:)

 

Já Stefanía mín...ég átti langar samraedur vid sólina ádan....hún lofadi ad vera gód naesta mánudinn.....bara fyrir tig:)

 

Vid erum sko ekki ordnar brúnar hér mamma...erum mikid inni bara...en erum ad fara ad vinna í tví:)

 

En nú er ég farin ad kúka.................

 

Keit át.........


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 19:14:55 / keit

Aftur í útlöndum

Jæja nú erum við hjúur komnar aftur til útlanda og nú er það Svíþjóð að heimsækja pabba og Pan. Við ákváðum að taka Hafdísi Maríu með og hafa ennþá meira stuð:) Við fórum í tívolí í gær og það var gaman..fannst mér nú skemmtilegast bara þessi litlu tæki fyrir börnin og var því gott að hafa Hafdísi með til að afsaka sig með:) Reyndar fórum við pabbi í einn rússíbana og það var líka æði:) Það er að koma einhver miðsumarshátíð hér og þá verða víst allir í fríi og veislur allstaðar. Okkur er boðið í tvær slíkar og það er bara okkar að ákveða hvað við gerum. Ein er hérna með pabba og Pan og þeirra fólki og svo er ein í margra klst fjarlægð hjá frænda hennar Erlu. Við erum að spá í að fara að heimsækja hann og þá er alveg eins gott að gera það núna eins og seinna. Þetta kemur allt saman í ljós:) Hér er alltaf gott veður og gott að vera...mér finnst það allavegana:) En jæja nú ætla ég að fara að borða og hafa það gott:) Sjáumst síðar:) Keit át.......

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 20:39:25 / keit

Gedveikur dagur:)

Í dag fórum vid í Mundomar...en tad er dýragardur. Tad var enn og aftur gedveikt vedur og vid sáum hofrungasjóf og fleira....tetta var aedislegur dagur. Bordudum svo gott og erum núna á leid upp á hótel ad drekka nokkra kalda:)

 

Ég vaeri gedveikt til í ad koma vid hjá tér á leidinni heim Iris en vid komum ca korter í eitt á midvikudagsnótt......efa tad ad tú verdir vakandi tá:( En vid gerum okkur bara ferd fljótlega í heimsókn til ykkar....verd ad fara sjá húsid titt mín kaera;)

 

Keit át.......


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 13:25:55 / keit

Á Spáni med fallegu stelpunni minni:)

Já halló allir....nú er ég bara á Spáni med asnalegt lyklabord og enga íslenska stafi:) Hér er 30 stiga hiti alla daga og sól...madur er bara ad sóla sig....synda í sjónum til ad kaela sig og svo drekka bjór tegar madur vill.

 

Ég er hèrna med stelpunni minni og vid hofum tad svo rosalega gott:) Tetta er lífid:) Bara dekur og chill og svo verslad frá sér vitid tess á milli:) Jaeja ég er farin út í sólina núna;)

Besta frí í heimi:)

Og nei Iris...ég held ad bloggid mitt sé alveg í lagi;)

 

Keit át......;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 16:20:37 / keit

Betraerseintenaldrei:)

Jæja þá hefur margt gert síðan síðast...ber þar að nefna að brotist var inn hjá Erlu og báðum tölvunum okkar stolið þannig að nú eigum við hvorugar tölvur og ég enn að borga af fjandans tölvunni minni!!! Þetta er ekkert smá súrt og svo fæ ég þetta sennilega aldrei tilbaka eða bætt á nokkurn hátt og ekki á ég pening fyrir nýrri!!! Arg!!!

 

Nú svo fórum við norður í land á Þorrablót og var það alveg rosalega gaman fannst mér...allt of  stutt reyndar en mjög gaman samt:) Þar hittum við fullt af liði, bæði skemmtilegu og minna skemmtilegu og því mikið stuð:)

 

Svo var Erla rekin út af heimili sínu, búin að borga leigu og allt...en þurfti svo að borga meiri leigu eða sem um nemur öllum laununum sínum og bíllyklunum mínum!!! Helvítis fífl þar á ferð segi ég nú bara!!! Já hún var sem sagt að vinna hjá sömu aðilum og hún bjó hjá og þau ráku hana út að tilefnislausu, heimtuðu leigu fyrir bæði mig og hana....ég mátti sem sagt ekki gista hjá kærustunni minni nema að borga leigu og kom svo seinna í ljós að sú leiga er um tvær milljónir + öll launin hennar Erlu!!! Já og þetta var aðeins fyrir einn og hálfan mánuð!!! Þannig er nefninlega mál með vexti að pakkið sem rekur staðinn einfaldlega rændi af mér bíllyklunum mínum og það kostar mig um 22 þúsund að láta smíða nýjan lykil!! En ef þetta pakk er með lyklana mína og vita hvar bíllinn minn heldur sig.....nú þá eru þau með tvær milljónir í höndunum!!! Nú ég gerði heiðarlega tilraun til að nálgast lyklana mína en þá var ég bara tuskuð til og hent út...og þeir sem þekkja mig vita að ég geri ekki flugu mein og er ekki með læti eða ókurteisi....þannig að það gefur að skilja að ég átti þetta engan veginn skilið og að viðkomandi maður er hreint og beint ógeð!!! Nú ég fór og talaði við lögregluna í von um hjálp....þeir reyndu að fá lyklana tilbaka en gekk ekki!!! Þannig að nú spyr ég ykkur, hvað ætti ég að gera? Nú svo til að gera ykkur enn betur grein fyrir því hversu óheiðarlegt og mis þetta pakk er að þá eru þau sem sagt að reka kaffihús/bar/gistiheimili í miðbænum og allt starfsfólk þar er undir 20 ára!!! Allir 18 ára nema ein gellan sem er 19 ára!! Ég hélt að fólk undir tvítugt mætti ekki afgreiða áfengi nema kannski þeir sem eru að læra til þjóns en það en nú ekkert af þessu starfsfólki að því!! Nú svo fá þau allt of lítið kaup, engar pásur og svei mér þá ef hann er ekki bara að borga svart líka!!! Allavegana neita þau öllum um launaseðla og já svo eru þau að borga í rangt stéttarfélag afþví að þá geta þau svikið starfsfólkið sitt um enn meiri pening og grætt sjálf fyrir vikið!!!!   

Já og svo ég laumi því nú að ykkur að þá er þetta meira að segja fósturmóðir hennar Erlu og hennar maður sem reka þetta fyrirtæki með stolti!!!

 

Já það sem var hér á undan skrifaði ég sem sagt 5.mars og það datt allt út og er svo bara allt í einu komið inn aftur núna.....álfar og huldufólk:)

 

En í stuttu máli sagt er lífið mitt þannig í dag...ég er komin í tæplega mánaðar spánarfrí..er að fara til Spánar á Miðvikudaginn með sætustu stelpu í heimi og hlakkar ekkert smá til:)

Eru svo fluttar á Akranes og keyrum til rvk til að sækja vinnu ef við komum til baka frá Spáni:)

 

Brynja og Guðjón giftu sig sumardaginn fyrsta og það var æði....þau voru svo sæt...dýrka þau:)

 

Ég á fallegustu stelpu í heimi og vissi ekki að lífið væri svona ljúft:)

 

Jæja er farin að horfa á Beverlí hills hehe:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 00:50:50 / keit

Hversu marga sogbletti getur ein manneskja haft á hálsinum???

Datt í hug að blogga smá þar sem ég er alein heima og hef ekkert að gera:( Erla er í vinnunni og ætlar svo sennilega eitthvað út á eftir en ég get ekkert farið út því ég er að verða veik:(  Þannig að ég hangi bara lengur ein.
En svona fyrir utan það þá hef ég það að vera að verða veik og komast ekki í vinnuna þá hef ég það ennþá alveg rosalega gott:) Enn að drepast úr hamingju og hver mínúta án sætu er frekar erfið, en maður kemst nú í gegnum það eins og annað í lífinu:)

Í gær skruppum við á Laugarbakka með Kleópötru því ég átti að vera að vinna alla helgina. Þá er svo erfitt fyrir þessa elsku að vera ein heima allan daginn og miklu betra fyrir hana að vera hjá Brynju eða mömmu í smá stund. Hún fílar sig í sveitinni:) Var samt ekki alveg nógu sátt þegar við vorum að fara aftur:(

Annars er það nú helst í fréttum að mér var hótað málsókn í dag!! Jú jú hún "vinkona" mín hótaði mér sem sagt  lögsókn eða hvað maður segir nú út af því að hún vill eiga hundinn líka!! Hefur varla skipt sér af henni í ár og svo allt í einu bara kominn tími til að eiga hund og ætlast til að geta smellt saman fingrunum og fengið Kleópötru þegar henni hentar!! Hún má eyða sínum peningum í svona bull ef hún vill en Kleópötru fær hún ekki, þvílíkt bull!!!

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira, ætla að halda áfram að vera veik og aumingjast uppi í rúmi.

Keit át.........

» 13 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 19:55:53 / keit

Ég er engin helvítis 10-11 fyrir þig, opið þegar þér hentar!!!

Þessi setning er í háfleygum höfð...nei djók eða eitthvað. Þetta var bara sagt við mig og mér fannst þetta alveg ofsalega fyndið, en kannski er þetta svona had to be there dæmi:) En það skiptir nú ekki máli því ég var þar og þá er þetta fyndið:)

Annars er allta gott að frétta héðan.....ennþá alveg rífandi hamingja hér á bæ. Hvað hef ég verið að gera síðustu daga??? Jú maður spyr sig:)

Á föstudaginn sá ég alveg opinn dauðan eins og ein góð vinkona mín orðaði það svo fallega....en þannig var nú mál með vexti að ég og mín kærasta kæra vorum á leið úr borg óttans og til þess merkis bæjar Akranes. Þaðan er nú þessi elska og hafði verið ákveðið fyrir löngu að fara að hitta hennar fjölskyldu eitt augnablik. Og það að það væri brjálað veður og svona skipti engu máli....sumir eru svolítið ákveðnir skiljiði:)

Allavegana þá var lagt af stað og í Mosó fundum við eina "gellu" sem var að fara að taka strætó upp á Akranes...já það er til!!! Við leyfðum henni nú að koma með því við erum svo góðhjartaðar:) En já við voru bara rétt komnar út fyrir bæinn þegar við urðum þess varar að árekstur hafði átt sér stað þarna úti í auðninni.....blikkandi blá ljós og löggukonur og kallar í svaka útidressi og gulum vestum að leiðbeina fólki sem var eins ákveðið að fara ferða sinnar eins og mín heittelskaða að komast leiðar sinnar:) Komum við aftast í þessa blessuðu bílaröð og þegar þurfti að bremsa þá bara virkaði ekki neitt sökum glæru á veginum......ekki virkaði að stýra bílnum útaf og það eina sem var í stöðunni var að bíða eftir að lenda á næsta bíl fyrir framan!! Þetta var svo lengi að líða að ég var búin að stirðna upp....og slaka á aftur og vera viðbúin, hreinlega sætta mig við þessi ósköp!! Svo bara svona 3 sekúndum áður en þetta allt saman varð að veruleika þá bara keyrði bíllinn fyrir framan svona rétt áfram svo við náðum að stoppa án þess að kyssa hann:) Guð og lukka:)

Þetta var til góða allt saman því Erlan mín keyrði eftir aðstæðum það sem eftir var ferðarinnar og komumst við heilar á leiðarenda;)

Það var heilsað upp á mömmuna og systkyni.....Kleópatra var með og hjá þessu yndislegasta fólki þá var hún sko númer eitt tvö og þrjú!! Held þau hafi ekki einu sinni tekið eftir mér;) hehe.

Svo var heilsað upp á ömmuna.....náð í eina ryksugu til að lána minni heittelskuðu frænku sem var ekki búin að ryksuga hjá sér síðan í ágúst...en nú er málið bætt;)

Svo fórum við og hittum aðra systur sem er kasólétt en á samt tæpa þrjá mánuði eftir af meðgöngunni!!!! Og hún er samt í tveimur störfum....leikskóla og veitingastað! Var einmitt að vinna á veitingarstaðnum þegar við komum og fengum við okkur að borða hjá henni:) Þessi elska heitir því undurfagra nafni....Katrín;)

Svo var heilsað upp á aðra ömmu....hún átti hund sem var rosalega spennt fyrir Kleópötru...en Kleópatra var nú ekki alveg eins spennt fyrir henni!!! Held að hundurinn minn sé haldin félagsfælni við aðra hunda......verð að fara með hana til sálfræðings;) hehe.

Svo keyrðum við bara heim á leið og höfðum það ógeðslega gott saman eins og alltaf:) Sváfum lengi á laugardaginn, fórum í ljós, fórum til Kleópötru, kúrðum fyrir framan sjónvarpið, fórum til Rvk, fórum í sturtu og gerðum okkur fínar, hittum Beggu og Láru og fórum á nýja gay staðinn!! Þetta er í annað sinn sem við reynum að fara á þennan nýja gay stað.....og í bæði skiptin hefur þetta bara alls ekki verið gay staður....en nú eru sögur á kreiki að opna eigi þennan blessaða stað í febrúar...við sjáum til;)

Svo röltum við á Kósý bara.....endum einhvern veginn alltaf þar....edrúmennskan var í meirihluta í okkar hópi og aðeins ein að drekka.....segi ykkur ekki hver það var en það var ekki ég, ekki Erla og ekki Begga;)

Sunnudagurinn kom og fór....og nú er mánudagur.....til mæðu. Sæta bara að vinna og ég heima að drepast úr hausverk og túrverkjum!! Ástand það!!!

Ég er að reyna að selja bílinn minn, þannig að ef einhver býður sig fram til að taka við afborgunum á honum þá verð ég rosa ánægð og læt viðkomandi kannski bara hafa bílinn líka;)

En allavegana þá nenni ég ekki að blogga meira í bili svo ég segi bara bæbb!!

Keit át.........

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 19:25:23 / keit

Er ekki tími til kominn að blogga?

Jæja nú ætla ég að blogga smá, enda kominn tími til held ég:) Hvað hefur gerst? Jú jólin komu í friði, fékk ég alveg fullt af jólagjöfum sem ég var rosalega ánægð með:) Árið 2006 var svo sprengt í tætlur...hef aldrei séð eins mikið af flugeldum og var ég nú samt í Mosó, ekki Reykjavík. Rétt fyrir áramót kynntist ég svo alveg rosalega sætri stelpu.....Erla heitir hún. Þorði náttúrulega ekki að biðja hana um símanúmer og þá er nú gott að eiga rosalega góða vinkonu sem heitir Erna:) Hún og hennar kæró redduðu alveg málunum og spenningurinn var í hámarki:) Hitti hana um áramótin, fór í partý til hennar og við fórum saman á áramótaball samkynhneigðra, það var rosa gaman. Það var sko svakalegt ballið maður...hef aldrei fengið heilann bjór skvett framan í mig áður, né verið hennt á milli staða og öskrað á mig öllum illum orðum í bókinni. En þetta gat ég gert þessi áramót. Það er nú samt allt í lagi með mig, meiddi mig ekkert en viðurkenni að ég varð frekar pirruð!!! En ákvað að gera nú ekki vesen úr því og halda bara áfram að skemmta mér í rólegheitunum:) Tókst það vel Út af öllum þessum látum þetta kvöld þá komst ég yfir öll mín vandræði sem höfðu hrjáð mig það herrans ár 2006:) Og var nú kominn tími til:) Gott uppgjör og endir á þessu öllu saman:) Árið 2007 byrjaði svo með hamingju og er enn rífandi hamingja á mínum bæ:) Ég á yndislegustu kærustu í heimi og fallegust er hún líka:) Hún er alltaf svo rosalega góð við mig og ég held að ég hafi nú bara aldrei verið hamingjusamari:) Nú er ég að vinna og tíminn líður óendanlega hægt, bara afþví að eftir vinnu þá ætla ég að fara að hitta Erlu mína og kúra hjá henni:) Jæja nú nenni ég ekki að segja meira svo ég segi bara bless í bili:) Keit át......

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 00:38:14 / keit

bla bla

Ok nú ætla ég að blogga.......hef ekkert merkilegt að segja nema það sama sama bara. Jólin að nálgast og mér finnst að við ættum að sleppa jólunum í ár!!! Það má allavegana enginn gefa mér jólagjöf!!! Því að ég get ekki gefið neinum neitt. Gleðileg jól.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 00:48:30 / keit

Loksins loksins:)

Jæja kæru lesendur, sem eru sennilega löngu hættir að lesa bloggið mitt sökum algjörrar grafarþagnar:)

En  allavegana þá ætla ég að skrifa hér nokkur orð, segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið síðan þarna á spáni:) Ég er einni kærustunni fátækari að venju en það er nú allt í lagi því mér skilst að það séu fullt af fallegum fiskum í sjónum í dag, það er að segja ef hvalirnir éta þá ekki alla:lol:

Við komum sem sagt heim frá Spáni og samdægurs var okkur tjáð það að við þyrftum að flytja!!! Ég er by the way búin að flytja 7 sinnum á þessu ári!!!

Við fluttum og við tókum þátt í gay pride göngunni, ég gekk niður Laugarveginn í níðþröngum svörtum samfesting, með grænt hár og air brush málningu, rosa töff og dansaði þar til gerðan dans:) Þetta er eitthvað sem ég hélt að ég myndi nú aldrei gera en gerði samt og þetta var ekkert smá gaman...hugsaði ekki einu sinni um allar myndavélarnar og það að það voru um 100 þúsund manns að horfa á:) Þessu var nefninlega sjónvarpað beint af Nfs.

Nú svo stuttu upp frá þessu hættum við Una saman, nenni nú ekki að fara út í þá sálma en við höfðum báðar sótt um vinnu í World Class áður en við hættum saman. Fórum saman í seinna vinnuviðtalið og fékk by the way hraðasekt á leiðinni!!

En við fengum sem sagt báðar vinnuna og sömu vaktir og alles, kannski frekar gay svona þegar maður er hættur saman en ég meina okkur langaði báðum í þessa vinnu og hvorug vildi sleppa! Það hafa verið erfiðir tímar en við erum víst báðar fullorðnar og hljótum að geta unnið saman:)

Við getum það allavegana ennþá og nú eru komnir bráðum 3 mánuðir:)

Stuttu eftir að við byrjuðum að vinna þarna þá byrjuðu tvær aðrar stelpur að vinna þarna og á sömu vöktum og við:) Við þekktum þær og svo skemmtilega vill til að þær eru lellur líka:) Þannig að nú erum við þekktar sem lellurnar úr world class:) Það fengum við að heyra einhvern tíman á gay balli allavegana;) En okkur kemur öllum rosalega vel saman og ég held að þetta hafi bara verið það besta ever;) Mér finnst actually rosalega gaman í vinnunni:)

En eins og gefur að skilja þegar maður er að vinna í svona stórri líkamsræktarstöð eins og World Class þá fær maður frítt í ræktina:) Það er enginn smá lúxus skal ég segja ykkur:) Og þar sem ég léttist niður í næstum því allt of létt út af sambandslitum þá get ég drukkið prótein allan daginn og æft eins og mér lystir og þynngt mig á jákvæðan og heilbrigðan hátt:) Í vöðvum en ekki fitu;) Við drögum sem sagt hvor aðra í ræktina einu sinni á dag þegar við erum að vinna, ýmist fyrir vinnu eða eftir;) Og svo þegar við erum ekki að vinna þá förum við yfirleitt tvisvar. Takmarkið er að verða rosa gellur um jólin og held ég að það muni takast:)

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira, eða vil reyndar ekki skrifa meira því hver nennir eiginlega að lesa svona langt blogg??? Enginn held ég:) Góða nótt í bili:)

Keit át..............................prótein.


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 22:45:03 / keit

allt og ekkert:)

Jaea nú sit ég hér á skrifstofunni hans Ramons, hann aetlar by the way ad giftast okkur bádum:) Í gaer fórum vid á strondina og thar blakti vid hún gulur fáni. Thad thýdir sem sagt ad thú mátt fara í sjóinn en bara varlega:) Graenn er ok, raudur er bann:) Vid vorum búnar ad kaupa vindsaeng og fórum í sjóinn og langt út, lágum og sóludum okkur:) Audvita sólbrann ég pínu, en thad er allt í lagi thví ég bar bara á mig after sun og nú er ég fín. Una líka:)

Vid erum búnar ad fá pínu lit:) og aetlum í vatnagardinn á morgunn:) Thad verdur gaman:) Jaeja nú er of heitt hér inni svo ég aetla ad fara út og  drekka bjór, já mamma BJÓR:)

Adios Una og Katrín:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 17:31:10 / keit

Spánn

Jaeja nú aetla ég ad skrifa nokkur ord, enda kannski kominn tími til ekki satt?:)

Margt hefur gerst sídan sídast og eitt af thví er thad ad ég og Una erum á Benidorm:)

Vid leigdum okkur litla íbúd sem er nú svo sem ekkert rosalega flott en thad er nú í lagi af thví ad vid sofum bara tharna, annars erum vid alltaf úti:) Vedrid hér er AEDISLEGT og vid erum bara á hlýrabolum og stuttbuxum eda pilsi. Reyndar oftast bara á bikíninu:) Á strondinni erum vid bara ad striplast á túttunum og thad er aedi. Vid erum búnar ad kynnast einum gaur sem heitir ( thví skemmitega nafni) RAMON, minnir mig bara einhvern veginn á Tímon og Pumba og Brynju;)

Ramon á sem sagt kebab stad hér og hann á flottasta thríhjól sem ég hef á aevinni séd:) Thad er GEDVEIKT:)

Fyrsta daginn komum vid ad kveldi, fórum upp á hótel med dótid og svo beint á djammid:) thad var gedveikt og vorum vid ekki komnar upp á hótel ad sofa fyrr en um 7 um morguninn:)

Annan daginn fórum vid svo á strondina og hofdum thad gott, versludum adeins og svo aftur á djammid:) Thad kvold var svo allt odruvísi en thad fyrra en samt svo rosalega notalegt og gott, syntum í sjónum ádur en vid fórum ad sofa:) Komnar ad sofa kl 10 um morguninn:)

Sokum mikils djamms  thá vard lítid af strondinni daginn eftir, lágum bara vid sundlaugina á hótelinu og sóludum okkur:) Svo kom Ramon ad ná í okkur vid fórum í annan bae ad skoda med honum og vini hans, hann heitir Kaareem:) Hann á by the way gedveika íbúd:) Their budu okkur út ad borda, gedveikur matur:) og veitingarstadurinn var svolítid skrítinn, eins og nánast allir stadir  thá er bordad úti, eins var med thennan stad, en eldhúsid var langt í burtu og thurftu thjónarnir actually ad fara yfir gotu med matinn:) Thetta var í Denia, en til ad komast thangad thá thurftum vid ad keyra yfir fjoll og thyrnindi:) Rosalega fallegt:)

Svo ad sjálfsogdu syntum vid í sjónum ádur en vid fórum ad sofa:)

Thetta hafa verid aedislegir dagar og sem betur fer eru maaaargir dagar eftir:) Thad er bara meira ad segja ekkert víst ad vid komum aftur:)

Jaeja ég skrifa meira seinna, fljótlega:)

Kvedja frá Spáni:)

Katrín og Una:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 23:29:38 / keit

Múltí monní

Jæja enn og aftur, nú hef ég tíma til að blogga. Líf mitt hefur breyst til muna síðan síðast! Ég hef endanlega kvatt mína fyrrverandi, byrjuð að vinna og komin með kvef!!

 

Já ég er byrjuð að vinna og ég vann mér inn ca 100þúsund krónur í síðustu viku:) Stundum var ég með 5þús á tímann, stundum 3, stundum 2 en minnst 1000! Stundum var þetta erfið vinna og stundum mjög auðveld!! Ég hef verið að kasta 30kg kössum á bretti í frosti, ég hef verið að setja salt í poka, ég hef verið að húkka kör á krana, ég hef meira að segja fengið að sofa í 2 tíma með 1000 kr á tímann!! Ég hef líka verið að keyra um bæinn, og svo var ég á fimmtudaginn að bakka glænýjum köggum úr gámum og leggja þeim í stæði. Fékk að keyra fullt af flottum og nýjum bílum á launum! Var með 2þús krónur á tímann við að gera það:) GEÐVEIKT:)

En ég verð nú að viðurkenna það að ég var orðin ansi þreytt á fimmtudagskvöld! Var búin að vera að vinna minnst 12 tíma alla daga, alla vikuna!

 

En stolt er ég af mér....og ég held að yfirmönnunum líki bara vel við mig:)Svo er ég líka að vinna með Mumma frænda og það er mjög fínt:)

Annars er ég stundum líka að vinna með minni fyrrverandi og hennar núverandi sem heitir því "flotta" nafni Mobus og trúið því að hún lítur jafn illa út og nafnið hljómar!! Hún er eins og misheppnað lukkutröll sem er loðið á alla kanta! En það skiptir mig nú ekki máli því ekki er hún kærasta mín sem betur fer:)

 

Í dag hitti ég Brynju, en hún var hér í bænum að hitta Elvu vinkonu sína, en þessi sama Elva var einmitt í Idolinu og datt út fyrir alls ekki löngu:( Hún átti sko ekki að detta út, og engin af þeim 3 sem voru á sviðinu áttu að vera á sviðinu í neðstu þremur!!! Við Brynja og Una var reyndar með fórum og hittum Sæu og við fengum okkur að borða á Nonnabátum, það var ágætt:) Svo þurftur skvísurnar að flýta sér heim og þá fórum við Una með hundinn á hundasvæðið. Þetta var í síðasta sinn sem við fórum þangað saman og þetta var í síðasta sinn sem ég ætla að hitta dömuna...ef ég hitti hana þá veit ég ekki hver hún er!

Sumir myndu segja að ég væri bitur...og það er alveg rétt! Ég er mjög sár og leið yfir þessu öllu saman og nú hef ég verið að velta mér upp úr þessu í rúma 3 mánuði og hef ég ákveðið að hætta því. Það er svo margt annað í lífinu en einhver gella! Hvað þá einhver gella sem vill mann ekki!!! Ég er reyndar aðallega móðguð yfir því að vera skipt út fyrir svona lukkutröll!! Ég ætla ekki að ræða þetta nánar enda kannski ekki mál sem ætti að tala um á bloggi!!Geri það samt því ég hef verið aðalumræðuefni lukkutröllsins á hennar bloggi!! Því er mér sama!!!

 

Hundurinn minn er að naga nautatyppi!!! Oj:)

 

Rétt í þessu var hringt í mig úr leyninúmeri og var ég viss um að það væri fyrrverandi og ætlaði því ekki að svara! En forvitnin rak mig áfram sem betur fer og ég svaraði:) Á hinni línunni var Magnús nokkur Skarphéðinsson, formaður sálarrannsóknarfélagsins að tilkynna mér þær gleðifréttir að við í tilraunafélaginu ætluðum að hittast á morgunn:) Loksins, er ég búin að bíða eftir þessu í 6 vikur eða á meðan miðillinn hefur verið að sólbaða sig á Kanarí:)

 

Jæja nú ætla að kveðja að sinni, og munið að dagurinn á morgunn er fyrsti dagurinn af restinni af lífi ykkar;) Góða nótt:)

 

Keit át:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5